Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
27.3.2008 | 22:57
Gullkorn
Það er oft skemmtilegt að vera kennari. Reyndar finnst mér það eiginlega MJÖG oft skemmtilegt. Börn eru nefnilega oft skýr og skemmtileg og ótrúlegustu gullkorn sem hrjóta af vörum þeirra - bara alveg svona óvart.....
Kannski finnst ykkur þetta ekki eins fyndið og mér - en hér læt ég nokkur "korn" flakka.
Það er aldrei of varlega farið. Um daginn var aspassúpa hjá okkur í matinn og fannst flestum krökkunum hún mjög góð og borðuðu vel. En ég tók eftir því að ein lítil stóð mjög fljótlega upp frá borðinu og fór að ausa af fullum diskinum sínum í ruslafötuna. Ég spurði hana afhverju hún vær að hella niður súpunni sinni án þess að smakka hana. Hún svaraði að bragði: ,, Ég ætla sko ekki að fá asma af þessari Asmasúpu!".
Við erum nýfarin að læra ensku með formlegum hætti í 3. bekk. Í einum enskutímanum skrifuðum við niður ýmis ensk orð sem nemendur kunnu (án þess að hafa "lært" þau eitthvað sérstaklega). Ýmis flott orð komu fram m.a. orðið "boot-camp". Þau vildu fá að vita nákvæmlega hvað orðið þýddi svo ég sagði þeim að orðið boot merkti einskonar skór/stígvél og camp væru einskonar búðir/tjaldbúðir. Þá rétti einn snjall upp hönd og sagði: "Hey, þá hlýtur boot-camp að þýða SKÓBÚÐIR!
Í strætó á leið heim úr Hallgrímskirkju, kom einn snáðinn auga á annan strætisvagn fyrir aftan okkur. Hann horfði á merkinguna framan á vagninum í góða stund og sagði svo:,,S1 ...Þýðir það ekki að hann sé seinn?"
,,Ég held ég sé klaufdýr" sagði ein lítil í tíma um daginn um leið og hún dæsti. ,,Ég er svo mikill klaufi."
Svo er hér einn gamall og góður úr sex ára bekk.....talandi um að vilja fylgja fyrirmælum.
Í sex ára bekk höfðum við unnið í nokkurn tíma markvisst með það að "rétta upp hönd" þegar einhver vill tala eða vantar aðstoð. Þetta hafði gengið nokkuð vel og flestir orðnir nokkuð færir í handauppréttingu en þó kannski enginn eins og snáðinn sem vaknaði einn morguninn frekar fúll og sagði við mömmu sína: ,,Mamma, ég er búinn að rétta upp hönd í alla nótt og þú komst aldrei og hjálpaðir mér .............og svo er mér orðið dauðillt í höndinni."
Þegar mamman spurði "áhyggjufull" á svip hvað það hefði verið sem hann þurfti svona brýna hjálp við sagðist hann löngu vera búinn að gleyma því ,,-hann hefði þurft að bíða svo lengi."´
(Sé hann alveg fyrir mér, liggjandi í rúminu með höndina lóðrétta upp í loftið)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2008 | 18:21
Svo lööööt......
...að ég nenni varla að blogga...hvað þá að gera eitthvað annað. Frí eru yndisleg en mjög spillandi um leið. Er búin að vafra um netið í dágóðan tíma og lesa um ýmislegt merkilegt s.s. hauskúpur og hunda á bæn. Hvað er annars með þessa hauskúpu? Datt engum í hug að láta kanna þetta? Það er kannski bara spurningin að fá Erlend sjálfan í málið. Næsta bók um hann gæti þá kannski heitið "Kjósin" eða "Kúpan" (af því að bækur Arnaldar heita alltaf bara einu nafni).
Á morgun byrjar ný (en stutt) vinnuvika. Byrjum þá á fundum og undirbúningi en svo mæta nemendur galvaskir á miðvikudag. Hlakka til að hitta þá og allt skemmtilega fólkið sem ég vinn með - komin með nóg af fríi - í bili.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 17:31
Annríki í fríi
Ég hef alltaf svo mikið að gera í fríunum mínum að það verður oft lítið úr fríi.
Þannig er það og þannig hefur það eiginlega alltaf verið. Ég byrja nefnilega sístematískt að "geyma" ýmsar framkvæmdir nokkrum vikum fyrir frí og segi við sjálfa mig ,,Geri þetta bara í fríinu - þá hef ég svo góðan tíma."
Þess vegna er ekkert tekið til í garðinum fyrr en ég fer í páskafrí, stórhreingerningin á baðinu er látin bíða, tiltekt í eldhússkápum frestað, safnað í stóran haug fyrir ferð í Sorpu, skýrslugerðir settar á hold svo fátt eitt sé nefnt. Síðan set ég upp mjög metnaðarfullt plan. Gleymist samt alltaf hjá mér að gera ráð fyrir öllum viðburðunum sem detta venjulega inn á þessa fáu frídaga. Viðburðir s.s. fermingar ættmenna, afmæli, matarboð og þess háttar. Svo má ekki gleyma veðrinu sem á einhvern undarlegan hátt verður allt í einu svo gott að sundferðir færast efst á forgangslistann. Þá verða gönguferðir, bóklestur og morgunlúr, um svipað leyti mikilvægur hluti af lífstílnum.
Svo þegar fríið er búið þá hef ég af einhverjum undarlegum ástæðum ekki komist yfir nema hluta þeirra verkefna sem fyrir lágu, en ég er þó örlítið dekkri á hörund, örlítið útsofnari, örlítið mettari eftir páskamatinn, örlítið afslappaðri og kærulausari því hvað gerir það til þó þetta hafi ekki klárast í þessu fríi? Næsta frí er á næsta leyti ... og þá ætla ég sko að.........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.3.2008 | 18:53
Á "óléttu" nótunum
Heyrði þessa skemmtilegu sögu frá vinkonu minni sem kennir í sama skóla og ég. Nemendur höfðu farið til hjúkrunarkonunnar í hina árlegu hæðar, þyngdar og sjónmælingu. Einn úr sjöunda bekk var með þetta allt á tæru þegar hann var spurður út í það hvað þau hefðu verið að gera hjá hjúkkunni. "Við vorum í svona Þungunarprófi", var hið greinagóða og lýsandi svar.
Bloggar | Breytt 7.3.2008 kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)