21.6.2008 | 17:35
Til hamingju Ísland....
Skrapp á landsleikinn með tveimur hressum 11 ára strákum. Íslenska kvennalandsliðið stóð sig að venju feykivel vann öruggan og sanngjarnan sigur á liði Slóveníu. Strákunum fannst mjög gaman og voru fullir aðdáunar á mörkum Margréti Láru og fimleikainnköstum Ástu Árnadóttur. Það var sko engin leiðindar kvenfyrlitning eða karlremba í gangi á þeim bæ. Alltaf gaman að fara á völlinn. Flott veður og fín stemming. Ingó Idol hélt upp stuði í hálfleik og gerði það vel.
Finnst samt .....- þrátt fyrir þá 4000 og eitthvað áhorfendur sem lögðu leið sína á völlinn, að fleiri hefðu átt á sýna stelpunum stuðning í verki í dag og mæta. Vona að fleiri mæti á fimmtudaginn þegar þær taka á móti Grikkjum.
Stelpurnar eru að standa sig.....nú verðum við hin líka að gera það.
Ísland á EM!
Ísland vann stórsigur á Slóveníu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er rétt að þær mega fá fleiri - ég held að evrópukeppnin sé eitthvað að spila inn í þetta!
En það er yndislegt að stelpurnar OKKAR eru að meika það !
Edda Agnarsdóttir, 22.6.2008 kl. 12:47
Það er erfitt að vera stelpa í fótbolta það hef ég reynt. En sem betur fer er það skárra en það var.
Rósa Harðardóttir, 23.6.2008 kl. 08:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.