14.5.2008 | 00:10
......fine tuning
-sagði hún
og hegðaðu þér
almennilega.
Hvernig gat hann
verið stilltur.
Hann sem hafði
aldrei
verið stilltur
-almennilega.
Orti þetta litla ljóð einu sinni á áhugaverðu endurmenntunarnámskeiði sem ég sat. Maður hefur alltaf gott af því að setja sig í spor nemenda sinna og reyna að sjá hlutina frá þeirra sjónarhorni.
Rithöfundinn Victor Hugo sagði eitt sinn; He who opens a school door, closes a prison. Ábyrgð skólanna á menntun og þroska ungmennanna er því mikil. Forsenda þess að skólar geti axlað þessa miklu ábyrgð er að til þeirra veljist hæft hugsjónafólk sem viti hvað þarf að gera og geri það sem þarf. Forsenda þess að þetta hæfa fólk veljist í þetta miklvægasta starf þjóðarinnar er að því sé boðin vinnuaðstaða og kjör sem hæfa þeirri ábyrgð sem það ber. Forsenda þess að vinnuaðstaða og kjör séu viðunandi er að þjóðin axli ábyrgðina með skólunum og allir taki höndum saman um að byggja upp virðingarvert og verðmætt menntasamfélag þar sem allir hafa tækifæri til að njóta sín, bæði nemendur og starfsfólk. Kannski er þetta þegar öllu er á botninn hvolft -bara smá stillingaratriði....-eða eins og þeir segja í bransanum " fine tuning".
Rakst á þetta spakmæli um daginn og finnst það eiga vel við. Good teachers are costly, but bad teachers cost more. ~Bob Talbert
Athugasemdir
Já það svo sannarlega rétt Anna Þóra, en ég er hrædd um það heppnist ekki alltaf því þá væri ekki svona mikið af "greindum" börnum. Margir hafa ekki getu eða áhuga, svo miðum við oft við það sem við þekkjum á eigin skinni, við miðum við það erfiðasta sem við höfum lent í, en oft er það ekki nóg til að skilja þann sem stendur fyrir framan okkur í amstri dagsins. En þetta með hugsjónafólkið, ég var einmitt að velta þessu fyrir mér um daginn, mér finnst vera minna um það fólk en þegar ég byrjaði að kenna, nú eru svo margir bara í vinnunni!!!
Rósa Harðardóttir, 20.5.2008 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.